allt að klárast í kotinu

Hvað ætli maður komist langt með einn líter af ólífuolíu á fjórum vikum? ef ég nota sojasósuna ofan á morgunmatinn þá klárast hún örugglega á mánuði. Fljótandi handsápuna (eigum ennþá sápustykki) væri nú hægt að nota líka í sturtuna og ef við miðum við tvo einstaklinga í sturtu (i sitthvoru lagi) annan hvorn dag, þá verður nú ekki mikið eftir í lok maí. Held ég komist þó ekki hjá því að kaupa klósettpappír áður en við förum, gerum þá ekki annað en að nota hann sem servíettur þegar það koma gestir. Það er smá snúið að versla inn vitandi það að brátt mun ég fara, ekkert fara í smá tíma og koma síðan aftur heldur bara fara fara og líklega aldrei koma aftur. En hvað með fulla pakkann af maizenamjölinu, hlít að meiga flytja hann inn til landsins, það er ekki eins og innihaldið sé haldið kúariðu eða neitt slíkt.

einn fyrir alla og allir fyrir einn

Hef ekki séð auglýsta neina göngu þó líklegast sé hún einhversstaðar, er jú í Frakklandi, landi gangnanna. Ælta þó að sýna samstöðu í verki, ekki skrifa neitt í dag heldur flatmaga á ströndinni og lesa eitthvað sem er ekki flóknara en andrésblað.

Finnur yfirgaf mig í morgun, fór til Marseille og ætlar sér þaðan til spánarlandsins á morgun og eitthvað fram yfir helgi. Skil ekki hvernig hann getur gert mér þetta, aldrei nokkurntíman myndi ég skilja hann einan eftir í meira en nokkra klukkustundir...


Það er hátíð í bæ

Tangohátíð þar sem dansað er undir berum himni þrjú kvöld (18-00) við undirleik tríós á einu af fallegu torgum borgarinnar. Hlusta á dásamlega tónlist, dansa nokkra dansa (verða nú aldrei fleiri þar sem eins og alltaf eru ca.4 konur á móti hverjum 2 körlum og aðeins þær bestu fá að dansa allan tíman, er á fimm ára planinu að komast í þann hóp) og horfa á glatt fólk skemmta sér á heilbrigðan og fallegan máta. Sannfærist betur og betur að ég er fædd nokkrum breiddargráðum of norðanlega.

nágrannarnir heima í stofu

Fólkið á móti er að fá sér hádegismat úti á svölum, sallat og með því og smá rauðvínsdreitill. Einhver er að spila á píanó neðar í götunni, hver sem það er þá er hann enginn byrjandi, hver prelúdían á fætur annarri. Börnin eru í boltaleik út á götu (engin bílaumferð í hverfinu þar sem við búum) og einhver svara í símann á hæðinni fyrir neðan. Kettirnir tveir flatmaga á þakinu á móti. Eftir að hafa haldið sig innandyra bak við gluggahlear í næstum fimm mánuði flykkist fólk nú út á götur og torg, allir með bros á vör, blóm í annarri baguette í hinni sáttir við lífið og tilveruna enda fullkomið veður, 20c og sól, ekki of heitt, ekki of kalt, bara gott.

a-ö, ó-æ

Held ég verði að gefa öllum Íslendingum og Mark vini mínum klapp á bakið fyrir að tala hið fáránlega tungumál sem íslenskan er. Það stendur ekki steinn yfir steini þegar kemur að reglum og því engin leið að læra neitt "by heart", alltaf einhver undantekning.

Hér eru tveir dagar
um tvo daga
frá tveim dögum
til tveggja daga

Ég veit ekki hvor lærir meira í kennslustundunum, ég eða nemandi minn sem spyr mikið og oft er fátt um svör. Benti honum á að franskan væri nú ekkert auðveld heldur þar sem aðein væri borinn fram hluti af hverju orði, hann vildi ekkert kannast við það.


Nývangur vs. flamengo

Á meðan strákarnir horfðu á Eið Smára og félaga sparka tuðru á Nývangi skelltum við mæðgurnar okkur í þetta líka ótrúlega flotta tónlistarhús Barcelona. Byggingin flott og af veggspjöldum og auglýsingum að dæma hefði ég getað farið á tónleika og sýningar í heila viku án þess að leiðast og þess á milli borðað tapas á veitingahúsi hússins. Væri gaman ef okkar verður eitthvað svipað nema með harðfisk og soðan ýsu með hamsatólg. Hafði farið á túrhestaflamengo á Römblunni nokkrum kvöldum áður, ætla ekki að skrifa um það. Við sátum framarlega sem reyndist alls ekki svo slæmt þar eð við gátum séð svipbrigðin á listamönnunum og reynt að telja steppin hjá dansörunum, okkur tókst það ekki. Skemmtileg blanda af yndislegri flamengotónlist sem meðal annars mjög fallegur cellóleikari lék, aría úr Carmen (söngkonan var þó því miður bara alls ekki nógu falleg til að syngja slíkt hlutverk, háu tónarnir misstu þarna dálítið sjarma sinn) og svo magnaður og seiðandi flamengodans, glæsilegrar konu og glæsilegs manns, svart, sítt liðað hár alveg eins og það á að vera, ó já. Og hvílikar tímasetningar hjá öllum hópnum, klapp, stepp, háa C, ljós út, the end!
Eiður lék reyndar með í fyrri hálfleik en leikurinn fór 0-0 svo mér heyrðist á strákunum að þeir hefðu jafnvel frekar viljað sjá flamengoinn en að sitja á neðri hlutanum með 100.000 öðrum í heila tvo tíma, skil það mjög vel.

god sommer

Nú er sumar,
gleðjist gumar
gaman er í dag.
Brosir veröld víða,
veðurlagsins blíða
eykur yndishag,
eykur yndis hag.

Látum spretta
spori létta,
spræka fáka nú.
Eftir sitji engi,
örvar víf og drengi
sumarskemmtun sú,
sumarskemmtun sú.

Tíminn líður
tíminn bíður
sælan sólskinsdag.
Yndi er úti á grundum,
yndi, heim þá skundum
seint um sólarlag,
seint um sólarlag.


Steingrímur Thorsteinsson

Gleðilegt sumar kæru lesendur
sumarið kom í gær hér við Miðjarðarhafsstrendurnar og get ég nú loksins spókað mig í fínum kjólum án þess að vera í óþæginlegum sokkabuxum innanundir og þar með opinberað hvítu spóaleggina mína fyrir öllum þeim sem verða á vegi mínum. þeir heppnir


believe it or not

Stelpan sem rekur hostelið (farfuglaheimili) sem ég gisti á í Barce: "Aldrei hefði ég trúað því að þú værir frá Íslandi,allir Íslendingar sem ég hef hitt eru mjög ljósir á hörund"

Ég hugsa að þessi setning muni fá mig til að sjá ljósa punktinn í tilverunni næstu mörg árin, sama hversu svart útlitið er, ef allt gengur á aftur fótunu, lífið virðist vonlaust og ég fæ gusuna frá drullupollinum sem gæinn á bimmanum keyrði ofaní, þá munu þessi orð fá mig til að brosa og sjá að allt verður gott aftur.


no hablo espanol

Atriði sem ég uppgvötaði í Barcelonaborg:

Ég kann ekki spænsku þrátt fyrir að vera með stúdentspróf upp á það í vasanum

Ég vil ekki fara ein í heimsreisu (hef í mörg ár talið sjálfri mér trú um að það væri í raun bara ágætt að fara ein hringinn í kringum hnöttinn á svona einu ári)

Ég þarf ekki að fá e-mailið hjá öllum sem ég tala við og er semi-áhugavert fólk. Það er hægt að spjalla saman og síðan bara fara í sitthvora áttina án þess að halda sambandi við þann sem þú þekkir í raun ekki neitt.

Það hentar mér ekki að sofa í herbergi með 7 ókunnugum!

Það er betri matur í frans en í katalóníu

hip og kúl fólk getur líka átt slæman dag og verið grumpy

Mig langar að flytja til Barcelona. Fyrir utan túrhesta og fremur vondan mat er borgin fulllkomin, virkilega vinalegt og jákvætt fólk (ólíkt þeim sem ég hef umgengist síðustu mánuði), það eru "fjöll", sjór, gott samgöngukerfi, falleg hús, flott föt og alltaf gott veður (nema seinasta fimmtudag og seinasta sunnudag)


gracias

Þakka hlýjar kveðjur með hvaða móti sem þær bárust. Er ekki frá því að 25 sé so far besti aldur minn til þessa, finnst eiginlega alveg ótrúlega skemmtilegt að vera orðin hálf þrítug, eitthvað svo alvöru. Afmælisdagurinn var eins góður og mögulega hefði getað orðið án minnar elskulegu fjölskyldu og vina. Ég og Ronaldo vinur minn (ítali, uppalinn í brasilíu og býr í kanada) sem varð 37 ára 17.apríl en varð að fljúga til rúmeníu að kvöldi 16. sigruðum heiminn og borðuðum 2 afmæliskökur, kúbönsk hrísgrjón, kjúlla og franskar á milli þess sem við klifum fjöll, skoðuðum kastala og fórum á ströndina, allt saman í yndislegu veðri.

dagur um dag frá degi til degis

Horfi efins á manninn á móti mér. Í kringum 55 ára, klæddur í íslenska lopapeysu þrátt fyrir 17gráðurnar úti og með eftirvæntingarsvip lítils stráks í augunum. Í barnslægri trú minni hafði ég haldið að maður á hans aldri með gráðu í viðskiptafræði gerði sér grein fyrir að það væri ekki einu sinni sjálfum páfanum fært að læra íslensku og dönsku, á sama tíma, á aðeins sex vikum. Hvernig á ég að koma manninum í skilningum að það muni ekki takast án þess að það líti út fyrir að ég efist um færni hans og móðgi hann? Þess gerist ekki þörf. Eftir fyrsta klukkutímann er hann farinn að reita hár sitt og muldra ofan í hálsmálið að líklegast væri auðveldara að læra kínversku heldur en þessa blessuðu íslensku sem hefur ca.7 leiðir til að bera fram stafinn L og ekkert hljóð í franskri tungu kemst nálægt því að hafa hljóð eins og tvöfalt LL í orðinu bíll. Allir vita jú að maður kemst ekki langt á íslandi ef þú getur ekki sagt orðið bíll almennilega. fyrir næsta tíma setti hann sér sjálfur fyrir að læra tölustafina, vikudagana, ákveðinn greini í öllum kynjum og orðið "dagur" í öllum föllum. hann hefur 10 daga

Er farin á stefnumót við Gaudi


það verður sko fjör á fernum

Hef það ekki á hreinu hverjir eða hversu margir lesa þessa síðu alltaf, stundum eða sjaldan en ég veit að það eru fleiri en þau tvö sem þegar eru búin að afboða sig í afmælisveisluna mína í Mirósafninu á miðvikudag. Af þeim tveimur frátöldum sé ég að 16 manns (amk 16mismunandi tölvur) hafa litið inn í dag sem þýðir að þetta verður með stærstu og fjölmennustu afmælisveislum sem ég hef haldið. mikið hlakka ég til að sjá ykkur öll sömul!!! munið bara að koma léttklædd, það er spáð 19c og sól.

bailar

Ef ég hugsaði jafn mikið um ritgerðina mín og ég hugsa um hvað mig langar mikið að dansa tango, alltaf, þá væri ég í góðum málum.

I've got no

þeir voru ekki tveir, ekki fimm og ekki níu, ekki færri en 30. Köstuðu frá sér rettunni þegar vagninn keyrði upp að stoppistöðinni og ruddust inn með þvílíkum offorsa að ég hefði trúað því að þeir hefðu verið að koma úr 3 vikna fríi og réðu sér ekki fyrir kæti að byrja aftur í vinnunni. Ekki sást vottu af brosi í andliti þeirra heldur einungis mikilmennskubrjálæði, svona eins og á smástrákunum sem vinna í tollinum í leifsstöð þegar þeir eru búnir að klæða sig í allt of stóru úlpurnar og setja á sig tollarahúfuna. Stóð ekki á sama þegar ég sá sjö vel útbúna lögreglumenn standa eftir fyrir utan, aldrei að vita nema Sarkozy hefði fengið enn eina snilldar hugmyndina, að stynga öllum í steininn sem ekki væru með miða. Fljótlega kom þó upp í mér púkinn og fannst mér þessi uppákoma í annars meira en lítið tilbreytingalausu lífi (fyrir utan seinustu viku að sjálfsögðu) ansi skemmtilegt. Minntist orða sambýlings míns um að það gerði illt vera fyrir alla aðila að leika heimskan útlending svo ég ákvað að taka bara kúlið á þetta og brosa til frosna andlitsins þegar ég tilkynnti honum að ég væri ekki með miða. Var dreginn (meira svona gekk sjálf, hitt hljómar bara betur) út og yfirheirð af tveimur ísmolum sem þiðnuðu þó örlítið þegar þeir sáu óskiljanlega langa nafnið mitt á Glitnis debetkortinu. þegar formsatriðum var lokið og ég orðin heilum 24 evrum fátækari var ekki annað að gera en að vera eins sær og ég gat og brosa til lögreglumannanna tveggja sem virtust vera undir þrítugt og horfðu á mig eins og þeir hefðu ekki séð kvenmann í mjög marga daga. Stökk upp í næsta vagn og rétt náði farinu mínu til að komast út fyrir borgina og dansa smá tango inn í nóttina.

hann á afmælí dag...

Haukur bróðir er 19ára í dag og óska ég honum innilega til hamingju með áfangann! við systkynin vorum reyndar sammála um að 19 sé frekar leiðinlegur aldur, 17 fær maður bílpróf ef maður vill og getur, 18 verður maður fullorðin/n og má gifta sig ef maður vill og getur, 20 má maður kaupa rauðvín af því maður vill og getur...en 19 má maður ekki neitt. Flest okkar þurfum við þó að ganga í gegnum það ár og er ég sannfærð um að það sé almennt mjög gott.

Annars er öllum lesendum boðið í 25ára afmælið mitt eftir viku og eina nótt. mæting kl. 17 við Míro safnið í Barcelona, boðið verður upp á ferð um safnið og léttar veitingar á eftir. Forföll vinsamlegast tilkynnist á hér fyrir neðan.

Fékk góðfúslegt leyfi til að spila á píanó í hljóðfæraverslun um daginn, minnti mig á hvað ég sakna píanósins míns ótrúlega mikið. Ætlað halda tónleika fyrir nágrannana þegar ég kem heim.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Hildur Björgvinsdóttir

Höfundur

Hildur Björgvinsdóttir
Hildur Björgvinsdóttir
Höfundur er mannfræði nemi,listunnandi og matargat sem skellti sér til Frakklands til að stúdera manninn,innbyrða menninguna og borða croisant og drekka vin,allt saman á franskri tungu sem hún varla skilur betur en japonsku eda mal frumbyggja Amazon.

Spurt er

Hver er uppáhalds árstíðin þín?
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband